Yfirfærsluverkefni (Transfer of Innovation) eru langstærsti verkefnaflokkur Leonardó verkefna. Styrkjum til yfirfærsluverkefna er stýrt beint frá heimalandi og árið 2012 hefur Ísland um 600 þúsund evrur til úthlutunar til yfirfærsluverkefna.
Markmið
Markmið yfirfærsluverkefna er að stuðla að yfirfærslu og nýtingu á niðurstöðum og aðferðum sem hafa verið þróaðar í öðrum verkefnum á sviði starfsmenntunar. Yfirfærsluverkefni veita tækifæri til að aðlaga og yfirfæra niðurstöður og aðferðir sem hafa verið þróaðar í öðrum verkefnum með það að markmiði að þær niðurstöður nýtist nýjum markhópum og starfsgreinum í fleiri löndum.
Verkefni sem verða styrkt eiga að miða að því að yfirfæra færni, reynslu og þekkingu milli einstakra markhópa, starfsgreina og Evrópulanda. Dæmi um viðfangsefni geta verið innleiðing nýrra kennsluaðferða, yfirfærsla aðferða í vinnustaðaþjálfun milli starfsgreina, innleiðing nýrra aðferða við mat á færni; aðlögun námsefnis að nýjum markhópum.
Í lýsingu á yfirfærsluverkefnum stendur:
The aim of Leonardo da Vinci Multilateral Projects, 'Transfer of Innovation' is to improve the quality and attractiveness of the European VET system by adapting and integrating innovative content or results from previous Leonardo da Vinci Projects, or from other innovative projects into public and/or private vocational training systems and companies at the national, local, regional, or sectoral level.
Lengd verkefna: Hámark 2 ár
Stuðningur getur numið allt að 75% prósent af samþykktum kostnaði
Styrkur: Hámarksstyrkur er 150 þúsund evrur á ári á verkefni.
Lágmarksfjöldi þátttökulanda eru 3 lönd, þar af að minnsta kosti eitt Evrópusambandsland.
Íslensk yfirfærsluverkefni 2007-2011
-
HeritagesMap_07.pdf
(Acrobat PDF 130 K)
-
Radiophonic Narration_07.pdf
(Acrobat PDF 124 K)
-
Retail_07.pdf
(Acrobat PDF 120 K)
-
SocialReturn_07.pdf
(Acrobat PDF 124 K)
-
Ties_08.pdf
(Acrobat PDF 123 K)
-
Sofia_08.pdf
(Acrobat PDF 123 K)
-
NetUniversity_08.pdf
(Acrobat PDF 131 K)
-
Leaps_08.pdf
(Acrobat PDF 131 K)
-
KnowHow_09.pdf
(Acrobat PDF 120 K)
-
Revow_09.pdf
(Acrobat PDF 130 K)
-
ShepSkills_09.pdf
(Acrobat PDF 119 K)
-
CreatvieLearningCom_10.pdf
(Acrobat PDF 119 K)
-
DOS_10.pdf
(Acrobat PDF 120 K)
-
Spice_10.pdf
(Acrobat PDF 119 K)
-
MentorforVET_11.pdf
(Acrobat PDF 273 K)
-
PlasticProcessing_11.pdf
(Acrobat PDF 276 K)
-
Training planner_11.pdf
(Acrobat PDF 276 K)






